Vá!! hvað ég er engan vegin að komast í blogg-gírinn þegar ég er
stödd á Klakanum!!! ....Núna er ég hvort eð er alltaf með öllu
fólkinu sem að les þetta blogg!!! ...og tala alveg heilan hellings
nóg við það!!! þannig að það er nú í rauninni algjör óþarfi að það
þurfi bæði að hlusta á mig og lesa um mig LÍKA!!!! ...En hvað
um það!! ég blogga bara fyrir vinkonur mínar í útlöndunum
núna...... aðeins tilsað fá svona smáááá bloggmetnað!!!!!
Það er alveg búið að vera algjört æði að hitta alla aftur!!
....reyndar er ég ekkert neitt alltof sátt með veðrið en allt annað
er alveg geggjað!!! á föstudaginn komu Inga, mamma og Elma að sækja
mig!! og það var algjört yndi að knúsa þær eftir mjööög leiðinlegt
ferðalag (15.000kr í yfirvigt og stopp í tolli...... ekki spurja!!)
ég og Inga skelltum okkur svo í Kvennóparty þar sem að ég hitti
allar kvennógellurnar mínar.... náttla hreinasta snilld!!! síðan
fórum við heim til Ingz þar sem við sátum inní eldhúsi að spjalla
og drukkum hvorki meira né minna en HEILAN LÍTER af
hvítvíni.... bara kósý!!! .....svo var stefnan tekin í bæinn
(Prikið og Hressó) þar var rassinn hristur og skotin teiguð langt
fram eftir morgni en svo haldið heim á leið í leigubíl í boði Odds
milljóner (það er alltílæ..... hann skuldar hvort eð er bara 2
milljónir hehehehe.....) svo á laugardaginn dúllaði ég mér bara með
múttunni minni, við fórum til ömmu og svonna, hitti svo Ástuna
mína, dúllaði mér með henni og við fórum svo að versla í matinn og
svonna!!! alveg merkilegt hvað það er komið mikið af nýjum
íslenskum mat og nýjum umbúðum utan um gamla íslenska matinn!
.....að mínu áliti er nýji smjörvinn ekki að gera sig!!! .....svona
svo að fátt eitt sé nefnt!!!! jösuss.... en um kvöldið borðuðum við
gellurnar saman, grilluðum og alles!! ...VÆGAST SAGT, ALGJÖRT
LOSTÆTI!!!!! mmmm.........
|
|
 |
 |
svo voru Sigrún og Ásta búnar að gera afmælisgóðgæti í eftirrétt
og jámm... mmmmm... orð fá því ekki líst!!!!!
jammíjammíjamm.........................!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
eftir þessa gífurlegu máltíð komu svo Oddurinn minn og Kollinn
minn í heimsókn og svo skelltum við okkur öll í kreisí bananas
partý heim til Bergs, það var helvíti hressandi!!!!!!
Daði alveg svoooona ánægður að fá Ástuna sína!!!
ég og Ingan mín náttla búnar að vera í djúpum faðmlögum síðan ég
mætti til landsins!!
Ingan mín og Kollinn minn
Daðinn minn og Grétarinn minn
ég með sætustu systrunum
ég og Kollinn minn að syngja og syngja!!!!
svo gisti maður barasta hjá múttunni hans Begga, þýddi ekkert
annað!! Er nú ekki búin að sjá konuna svooooo lengi




á sunnudeginum var það svo bara eitt stykki fermingarveisla hjá
Láru frænku og svo matarboð hjá tengdó á eftir, fékk líka þennan
rooosa góða hamborgarahrygg og audda rauðvínið hjá Sissu klikkar
aldrei!!!! ......það var voða kósý að sitja uppí sófa að drekka
rauðvín og spjalla við tengdó, náttla alltof langt síðan
síðast!!!!! ...svo var ég líka svo heppin að hitta Tönju Rut,
fallegustu prinsessuna mína
|
|
 |
 |
svoo í dag byrjaði ég daginn á að fara með henni Láru minni í 20
vikna sónar, og vá það var algjör snilld, þetta er alveg
merkilegt!!! sáum litla hjartað, heilann, nyrun og pissublöðruna og
audda var allt alveg rúmlega fullkomið!!! litlu hendurnar voru
orðnar heilir 3 cm og allt barnið 25 cm..... bara pínu pons!!! en
vá þetta var alveg magnað og lífsreynsla sem að ég mun aldrei
gleyma!!! og Láran mín svo ótrúlega falleg með litlu bumuna sína!!!
það gjörsamlega geislar af henni!!!! ....eftir sónarinn þá lentum
við á 3 klst kjaftatörn en svo neyddist Lára að fara heim að læra
og ég heim að hvíla mig, enda þjáist ég af rooosalegri langþreytu,
gjörsamlega búin að keyra mig út í Danmörkunni þessa önnina
fúff...!!!!
En eftir hvíld og afslöppun þá eldaði mamma handa mér ýsu og
kartöflur og ég get svo svarið fyrir það að ég hélt að ég myndi fá
það!!! ji... hvað íslensk ýsa og kartöflur er alveg ólöglega
gott!!!!!! .... síðan var leiðinni haldið til Andra Steins
Fallegasta Prins og Brynju minnar en þar voru einmitt Inga og Nína
og audda Kolla líka!! það r alveg voða voða kósý og je dúdda mía
hvað þessi litli prins er mikil krúsídúlla, hann er orðinn svoooooo
stór!! og svo rosa dullegur!! ... ég veit ekki alveg hvað hann
heldur að hann sé, þessi töffari!! ....er farinn að sitja bara og
kominn með tennur og allt!! ekkert smá snöggur að þessu!! svo er
hann svooo rosa góður og brosmildur!! situr bara og hlær að öllu
þessi dúlla!!!
kúruvinirnir!!
voða gaman hjá okkur!!
Andri Steinn litla bolla með mömmunni sinni, voða gaman hjá
essum prinsi!! jiii hvað ég hlakka til að knúsast í honum næst!!
hann er svooo sætur að það er bara ROSALEGT!!!!
eftir heimsóknina hjá sætustu mæðginunum þá sótti Oddurinn minn
mig og við skelltum okkur í nokkra bjóra og spjall á Vegó, það var
alveg rosa kósý, algjört æði að vera með Oddi og náttla algjört æði
að komast á Vegó attur!!! mmmm.... bara yndislegt kvöld alveg
hreint, líka yndislegur morgun og yndisleg helgi!!!
..já greinilega alveg yndislegt að vera komin til landsins!!!
....ekki samt alveg jafn yndislegt hvað þetta blogg er orðið
ólesanlega langt!!! ...held að það þýði bara það að ég verði að
vera dullegri við að blogga hér á landi, nú eða þá bara sleppa
því!!! hhhmmmmm......!!!
allavega þið sem nenntuð að lesa
theink jú!!
Eva Yndislega
jeremías!! ég held að ég hafi aldrei komið með jafn langa færslu
með jafn mikið af myndum!! ....er samt að fara að hlaða mundum inná
albúmið.... um leið og ég man fokkings lykilorðið!!!
sjíssess...!!!